Salatið þarf ekki alltaf að vera meinhollt. Í þessu sæta salati eru epli og Snickers! Sjáðu hvað fólk verður hissa þegar þú berð þetta fram!
Maður þarf ekki alltaf að vera með eintóm græn laufblöð og hollustu í salatinu. Það getur verið gaman einstaka sinnum að setja eitthvað þessu líkt saman. Hér eru grænir eplabitar og niðurskorið Snickers súkkulaði sett út í þeyttan rjóma og þá er kominn „alveg draumur í dósum“.
Hitaeiningabomba: epla og Snickers eftirmatur
Fyrir 6-8
Efni:
- 6 græn epli, skorin í bita
- 6 Snickers lengjur, skornar í bita
- 1 pakki vanilla eða karamellubúðingur
- 1/2 bolli matreiðslurjómi
- 1 peli rjómi
- Karamellu sósa
- Aðferð:
- Skerið epli og Snickers í bita.
- Setjið búðingsduftið í skál, hellið matreiðslurjómanum út í og þeytið. Blandið rjómanum ( sem búið er að þeyta) út í, hellið eplum og Snickers saman við og blandið.
- Látið standa í ísskáp ca. klukkustund áður en eftirmaturinn er borinn fram. Gott að skreyta með karamellusósu!