Jennifer Johnson, þrítug tveggja barna móðir lést núna rétt fyrir jól. Hún greindist með hjartasjúkdóm þegar hún var bara gengin 5 mánuði með seinna barn sitt og þurfti að fá gangráð. Það kom svo fljótlega í ljós að nokkrir vírar voru lausir í gangráðnum og þurfti Jennifer að gangast undir hjartaaðgerð rétt fyrir jólin. Hún lést svo í kjölfar hennar.
Hún setti saman þetta myndband til þess að óska eftir fjárhagslegri aðstoð því hún þurfti að fara í dýra aðgerð hjá tannlækni skömmu fyrir hjartaaðgerðina og var þess vegna að óska eftir hjálp.
Heimildir: Daily mail
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.