Ef þú ert í vandræðum með að koma hjólinu þínu fyrir skaltu ekki örvænta því lausnir eru til á öllum vandamálum. Chris Brigham hannaði þessa snilldarhillu undir reiðhjól sem hægt er að hengja upp þar sem pláss leyfir. Líka er hægt að nýta hilluna undir bækur eða annað smádót. Ekki veit ég hvort hún fáist hér á landi en hægt er að panta hana á Netinu hjá Knife & Saw.
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.