Þvert á það sem ætla mætti, er hljóð að heyra úti í geimnum. Og það sem meira er, hver og ein pláneta hefur sitt “eigið tungumál” sem mannseyrað – í tæknilegum skilningi þeirra orða – er fært um að nema.
Vegna þess tómarúms sem ríkir í sjálfum geimnum, er í raun ekki um eiginleg hljóð að ræða í þeim skilningi sem ég og þú leggjum í hugtakið heldur eru hljóðin tilkomin vegna rafsegulsbylgja sem berast á sömu bylgjulengd og þær hljóðbylgjur sem mannseyrað nemur.
Hér að neðan má hlýða á afar merkilegar hljóðupptökur sem tæki NASA – þar á meðal Voyager – hafa numið og hljóðritað, en hér er um að ræða hljóðbylgjur sem umbreytt hefur verið í hljóð sem við getum hlýtt á og útkoman er hreint út sagt ótrúleg; allt frá því að minna á hryllingsmynd og upp í að framkalla minningar af löngu sungnum vögguvísum.
Svona hljómar sólkerfið – ótrúlegt, ekki satt?
http://youtu.be/-MmWeZHsQzs
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.