„Allt byrjaði þetta út frá sameiginlegri ástríðu okkar á að skapa, greina þær Ina og Ingrid frá á heimasíðu sinni.” Ingrid er grafískur hönnuður og Ina inanhússarkitekt og saman reka þær AMAI sem sérhæfir sig í framleiðslu á húsbúnaðarvörum. „Eins miklir fagurkerar og við erum þá byrjuðum við á að leika okkur að búa til hluti handa okkur sjálfum, eitt leiddi af öðru sem endaði með því að AMAI varð til” segja þær ennfremur. Í dag eru AMAI vörurnar seldar víðsvegar um heiminn. Velgengni fyrirtækisins kemur ekki á óvart því um einstakalega fallega muni er að ræða eins og myndirnar bera ótvírætt vitni um. Fyrir þá sem vilja sjá meira frá þeim stöllum þá er haust- og vetrarbæklingur fyrirtækisins HÉR.
Ljósmyndir: Amai
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.