Hér er á ferðinni hráfæðiskaka þar sem bæði hollusta og einfaldleiki fara saman. Það er algjör óþarfi að hræðast að nota avacado í bakstur – það setur punktinn yfir i-ið hvað þessa köku varðar.
Sjá einnig:Brownie ostakaka með kasjúhnetum og karamellukremi
Hollustubrownies
170 g valhnetur (eða pekanhnetur)
170 g döðlur, steinlausar
30 g hreint kakó
Súkkulaðikrem
1 avacado
3-5 msk hunang (eða agavesýróp)
30 gr kakóduft
2 tsk vanilludropar
hnífsoddur salt
hnífsoddur kanill
- Blandið saman hnetum, döðlum og 30 gr af kakódufti í matvinnsluvél og blandið þar til deig hefur myndast.
- Setjið blönduna í ca. 20×20 cm stórt form hulið smjörpappír eða þá stærð sem þið kjósið – ef minna verða kökurnar að sjálfsögðu bara þykkari. Mér finnst ágætt að nota brauðform.
- Látið avacado, hunang, 30 gr kakóduft, vanilludropa, salt og kanil í matvinnsluvél og blandið þar til blandan er farin að líkjast súkkulaðikremi. Smyrjið því næst kreminu á kökuna.
- Setjið í frystinn í amk. 30 mínútur og skerið síðan í sneiðar.
Skreytið með kókosflögum og jarðaberjum.
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.