House Doctor er danskt fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 2001 af þremur systkinum, þeim Rikke Juhl Jensen, Gitte Juhl Capel, and Klaus Juhl Pedersen. Sameiginleg ástríða þeirra systkina á innanhússhönnun og fallegum heimilum skilar sér svo sannarlega í fjölbreyttu og fallegu vöruúrvali House Doctor.
Hér gefur á að líta hluta af vor og sumarlínu fyrirtækisins þar sem léttleiki og fágað handbragð er haft í fyrirrúmi. Þeir sem vilja kynna sér ennfrekar fallegu vörur House Doctor er bent á vor og sumar bæklinginn þeirra sem hægt er að nálgast HÉR.
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.