Mér finnst hrákökur mjög góðar og finnst mjög gaman að prófa ýmsar útfærslur. Ég á oftast eina slíka inni í frysti. Stundum geri ég líka hrábita sem eru hálfgert konfekt og fullnægja sætuþörf á núll einni. Þessir hrábitar heppnuðust rosalega vel og framkölluðu stórt bros þegar bitið var í.
Bitarnir
12 ferskar döðlur
70 gr. kókosflögur
70 gr. valhnetur
100 gr. möndlur
1 tsk vanilludropar
salt á hnífsoddi
Gróft hnetusmjör
Súkkulaðibráð
1 msk brædd kókosolía
2 msk hreint kakóduft
smá hunang eða agave
Aðferð
1. Setjið kókosflögur, valhnetur og möndlur í matvinnsluvél.
2. Steinhreinsið döðlurnar og setjið í matvinnsluvélina ásamt vanilludropum og salti. Mixið allt vel saman.
3. Mótið hæfilega stóra konfektbita og færið í frysti. Uppskriftin gefur um 20 bita.
4. Bræðið saman kókosolíu og kakóduft í potti og sætið með smá hunangi eða agave. Slökkvið undir.
5. Takið bitana úr frystinum og dýfið þeim hálfum í súkkulaðibráðina.
6. Smyrjið hnetusmjöri ofan á bitana.
7. Dreypið súkkulaðibráði yfir bitana og setjið punktinn yfir I-ið með smá kókosmjöli.
Geymið í frysti og njótið vel!
Birna er tvítug Reykjavíkurmær. Hún er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Birna stundar Boot Camp, hlaup og lyftingar af kappi. Hún er dugleg að takast á við krefjandi áskoranir og leika lausum hala utan þægindarammans. Hvort sem það er utanvegahlaup, kraftlyftingar, þrekkeppnir eða annað í þeim dúr. Birna mun deila uppskriftum úr eigin tilraunaeldhúsi með lesendum Hún.is ásamt því að skrifa skemmtilega og upplífgandi pistla er snúa að heilbrigðum lífsstíl og sjálfsrækt.