Ertu á hraðferð? Tímirðu ekki að splæsa í splúnkunýjan hrekkjavökubúning? Örvæntu eigi. Líkt og Öskubuska reddaði sér inn á ballið þá getur þú græjað flottan hrekkjavökubúning sem kostar ekki annan handlegginn á bara nokkrum mínútum.
Þú einfaldlega græjar leðurblökuvængi og eyru sem þú getur notað við hvaða svarta kjól sem er en flestar lumum við á einhverju svörtu í fataskápnum okkar.
Einfaldur og krúttlegur búningur!
Leiðbeiningar
- Mældu lengd milli herðarblaða og út að fingrum.
- Notaðu gamla flík eða keyptu efni í næstu vefnaðarverslun
- Brjóttu saman efnið til helminga og teiknaðu upp vængjamynstrið útfrá lengdinni sem þú mældir.
- Opnaðu vængina og festu fyrir mitt bak eins og sést á myndinni með saumavél eða nál og tvinna.
- Festu teygju eða band neðst eins og myndin sýnir til að vængirnir haldist á fingrunum
- Mikilvægt að vængirnir séu í réttri lengd til að strekkjast beint.
- Klipptu út fjórða þríhyrninga úr leðurefni eða öðru aðeins þykkara efni
- Snúðu hliðunum öfugt þegar þú ert að sauma þær saman svo að þær snúi rétt þegar þú snýrð þeim við.
- Festu eyrun á spöng eða hárband sem þú getur fest almennilega.
Tilbúið!