Sumum finnst að konur eigi ekki að vera mjög húðflúraðar en það er auðvitað misjafnt eins og fólk er margt. Húðflúrin eru svolítið að detta aftur í tísku og hipsterarnir hafa tekið þeim opnum örmum.
Í nýrri bók um heimsins mest flúruðu konurnar sést að það er ekki bara einhver ein týpa af konum sem er með húðflúr. Bókin sem heitir Ink N Girls er gefin út af Schiffer Books og skrifuð af Akos Bánfalvi sem er vel þekktur ungverskur blaðamaður.
Módelið Sarah Mailet er með húðflúr yfir allt bakið og allan vinstri handlegg
Þessi stúlka kallar sig Angel Dies og er líka í bókinni
Leigha Hagan er með flúruð brjóst á handleggnum sínum
Hún Leigha er með mörg lítil listaverk á sér, meðal annars karl með gasgrímu, hauskúpu og hún er meira að segja með flúr undir öðru auganu
Heimildir: Daily Mail