Ég sagði ykkur frá því, fyrir ekki svo löngu síðan að ég fór í Dermapen meðferð hjá Húðfegrun. Ég fann mér til skelfingar að ég var orðin þrítug og mér fannst ég finna og sjá mun á húðinni minni á hverjum degi. Held reyndar að þetta hafi örugglega verið 50% bara í hausnum á mér en engu að síður fór ég á stúfana til að sjá hvað væri í boði fyrir svona hrikalega krumpaðar konur eins og mig. Þetta er samt grín! Ekki vera reið. Ég geri mér alveg grein fyrir að ég er ekki krumpuð en ég fann að húðin var að þynnast, svitaholur að verða sýnilegri og mig langaði að vera góð við húðina mína og kannski, hugsanlega laga eitthvað sem var þarna…. eða var ekki þarna.
Ég fór í 4 Dermapen meðferðir hjá Húðfegrun og ég sé alls ekki eftir neinu þegar upp er staðið. Ég finn hvað húðin mín elskaði þetta og húðin á andlitinu mínu er öll orðin sterkari, þykkari og áferð húðarinnar er svo miklu fallegri en áður en ég fór í þetta. Ég fékk þær athugasemdir eftir að ég birti fyrri greinina að fólk sæi ekki mun og ég væri alveg eins og áður en það er bara ekki rétt. Ég get fullyrt það, þar sem ég horfi á andlitið á mér á hverjum einasta degi, jafnvel nokkrum sinnum á dag. Ég ber krem á þessa húð og farða þessa húð og þekki hana eins og alla aðra parta á líkama mínum. Munurinn er gífurlegur. Ef ég strýk yfir kinnar mínar þá finn ég að húðin er allt önnur en hún var.
Til vinstri: Tekin fyrir 1. meðferð, semsagt ekkert búin að gera — Til hægri: Tekin fyrir 3. meðferð.
Nýjasta myndin sýnir mesta muninn finnst mér. Hún er tekin eftir meðferðirnar að 4 vikum liðnum.
Nú get ég bara haldið þessu við á nokkurra mánaða fresti.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.