Hér er frábær uppskrift af Hummus sem kemur frá Café Sigrún.
Innihald
- 1 dós (240 g án vökvans) soðnar/niðursoðnar kjúklingabaunir
- 1-2 stór hvítlauksrif
- 2 msk tahini (sesammauk)
- 1,5 msk sítrónusafi
- 1 tsk tamarisósa
- Smá klípa cayennepipar eða paprika
- 0,25 tsk cumin (ekki kúmen)
- 20 ml af vatni eða sojamjólk
- 40 ml ólífuolía (sumir nota meiri ólífuolíu)
- Salt (Himalaya eða sjávarsalt) eftir smekk
- Svartur pipar eftir smekk
Aðferð
- Hellið öllu vatni af kjúklingabaununum og setjið þær í matvinnsluvél. Maukið í um 10 sekúndur.
- Afhýðið hvítlaukinn, saxið hann smátt/pressið hann og bætið honum út í ásamt tahini, sítrónusafa, tamarisósu, cayennepipar og cumin.
- Maukið allt saman í um 30 sekúndur eða skemur ef þið viljið grófari áferð.
- Kryddið með meiri tamarisósu og svörtum pipar. Einnig má bæta aðeins við af tahini ef þið viljið meira bragð af því.
- Á meðan vélin vinnur skuluð þið hella ólífuolíunni út í hummusinn í mjórri en stöðugri bunu. Ef þið viljið hummusinn þynnri má bæta vatni eða sojamjólk út í.
- Berið fram í skál og dreifið smá klípu af cayenne pipar yfir. Einnig er gott að setja 1 tsk af ólífuolíu yfir hummusinn ásamt kjúklingabaunum og coriander ef þið viljið.
Endilega smellið einu like-i á Facebook síðu Café Sigrúnar
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.