Ég var sex ára gömul þegar ég sá Kimono í fyrsta sinn; djúprauðan að lit með voldugum vösum, en hann var í eigu móður minnar.
Ég gleymi andartakinu aldrei. Frá þeim degi hef ég verið hugfangin af hinum japanska Kimono sem á sér aldalanga hefð, en tískan gengur í endalausa hringi og þannig verða vestrænir kimono áberandi í sumartískunni í ár.
Litríkir, draumkenndir og seiðandi kvenlegir; kimonotískan er fyrir löngu orðin klassísk og snýr ávallt aftur. Kona sem á í eigu sinni vandaðan Kimono ætti því að fara vel með flíkina; sem er lífstíðareign og gott betur en það, hefur oftar en ekki gengið í arf meðal kynslóða.
Á Wikipedia má finna þessa frábæru mynd sem sýnir hvernig á að brjóta saman Kimono:
Þessa draumkenndu Kimono, sem sjá má í albúminu að neðan, bar fyrir augu mín þegar ég fletti upp #kimono á Instagram, en þú getur smellt á tenglana hér að neðan, ef þig langar að skapa þitt eigið Kimono ævintýri á samskiptamiðlinum:
Hún er á Instagram: Smelltu á hnappinn
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.