Þegar öllu er á botninn hvolft þá er einfaldleikinn það sem öllu máli skiptir undir sólinni.
Rúmfatalínan Bed & Philosopy stendur svo sannarlega undir þessu með snilldar samsetningu á efni, litavali og áprentuðum orðum.
Sonia Provist franskur stílisti er hönnuður þessarar fallegu línu. Hún hefur haft mikla ástríðu fyrir textíl í gegnum árin sem skilar sér vel í þessu sköpunarverki hennar.
Hér er slóðin á heimasíðu hennar: www.bedandphilosophy.com
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.