Áttu erfitt með að losa þig við hluti? Prófaðu að halda á eða snerta hlutinn sem þú getur ekki ákveðið þig um hvort þú eigir að henda eða ekki. Með því að halda á hlutnum geturðu fundið hvort þú hafir einhverjar sérstakar tilfinningar til viðkomandi hlutar.
Sjá einnig: Er þetta skipulagðasta heimili heims? – myndband
Hvort sem um ræðir föt, bækur, fylgihluti eða bara eitthvað annað dót sem þú ert með inni í skápum eða geymslu, skaltu hugsa þér hvað þú þarft á að halda virkilega. Mundu svo að hreint hús er hreinsandi fyrir sálina.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.