Margir velta því eflaust fyrir sér hvað stjörnur á borð við Khloe Kardashian borða yfir daginn. Hvað borðar fræga fólkið eiginlega? Hvernig heldur þetta fólk sér í svona góðu formi?
Sjá einnig: Khloe Kardashian: Fáklædd við æfingar á St.Barths
Í vikunni kom út bók eftir raunveruleikastjörnuna Khloe Kardashian. Bók ber nafnið STRONG Looks Better Naked og fjallar meðal annars um baráttu Khloe við aukakílóin. Í bókinni gefur Khloe lesendum sínum góð ráð varðandi líkamsrækt og matarræði og gefur þeim innsýn inn í sína eigin matardagbók.
Svona lítur einn dagur út hjá Khloe:
05:00 – Stórt glas af vatni og svart kaffi.
6:00 – Líkamsrækt.
08:00 – Stórt glas af vatni, hafragrautur og prótínhristingur.
11:00 – Epli og hnetusmjör.
13:00 – Kínverskt kjúklingasalat.
15:00 – Hummus, grænmeti og stórt glas af vatni.
19:00 – Fiskur og gufusoðið grænmeti.
21:00 – Ávextir og grísk jógúrt.