John Travolta vakti mikla athygli á Óskarsverðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Um hálsinn bar hann hryllilega hallærislega gullkeðju. Augabrúnirnar á honum voru augljóslega litaðar. Andlitið á honum minnir á Ken-dúkku sem einhver gleymdi úti í sólinni. Og ég ætla ekki einu sinni að reyna að koma orðum að hárígræðslunni. Einhver lét flakka á Twitter að þessar umræður í hans garð væru óréttlátar – hann væri augljóslega að leika í Face Off 2.
Góður brandari það.
Eldri myndir af John:
Og John í gærkvöldi:
Scarlett virðist álíka hrifin af honum og ég.
Tengdar greinar:
Þekktir leikarar og hlutverk sem þau myndu vilja gleyma
Donatella Versace illa farin eftir of margar lýtaaðgerðir
27 manns sem hafa farið of langt í lýtaaðgerðunum
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.