Hvað er lungnabólga?
Lungnabólga er bólga í lungnavef. Orsök hennar er örverur (veirur, bakteríur, sveppir og sníkjudýr) eða ertandi (eitur)efni þ.e. ásvelging á magainnihaldi (magainnihald fer niður í lungun) eða innöndun á eitruðum gastegundum.
- Lungnabólga er mjög algengur sjúkdómur.
- Rúmlega helmingur lungnabólgutilfella er af völdum bakteríusýkinga og er lungnahnettlusýking (Pneumokokkasýking) algengust.
Hér verður fjallað um lungnahnettlu-lungnabólgu.
Hvernig smitast lungnabólga?
Smit berst yfirleitt með andrúmslofti, úðasmiti. Það er sjaldgæft að bakterían berist með blóði frá sýktu svæði í líkamanum, t.d. beinsýkingu, til lungnanna. Við alvarleg veikindi er fólk oft svo máttfarið að það á erfitt með að kasta upp. Þá er hætta á að viðkomandi svelgist á og hluti magainnihaldsins fari ofan í lungun. Það getur valdið alvarlegri lungnabólgu.
Hver eru einkennin?
- Oft er um að ræða veirusýkingu áður en lungnabólgan kemur fram.
- Sjúklingurinn veikist snögglega með hrolli, háum hita, takverk í brjósti og þurrum hósta.
- Sólarhring til tveimur sólarhringum síðar fylgir hóstanum uppgangur, yfirleitt grænleitur eða rústrauður (slím blandað blóði).
- Sýkingunni fylgir oft frunsumyndun við munninn sem er merki um skerta starfsemi ónæmiskerfisins.
- Sjúklingurinn andar ört og grunnt og brjóstkassinn hreyfist oft minna þeim megin sem lungnabólgan er.
- Roskið fólk verður oft illa áttað á stað og stund og órólegt.
Sjá einnig: Loftmengun helsta orsök krabbameins í lungum og blöðruhálskirtli
Hverjir eru í áhættuhópi?
- Þeir sem misst hafa miltað.
- Veikt roskið fólk.
- Sjúklingar með langvinna sjúkdóma t.d. sykursýki, hjarta-, eða lungnasjúkdóma.
- Þeir sem eru með skert ónæmiskerfi.
- Alkóhólistar.
- Börn, sérstaklega langveik börn.
Ráðleggingar
- Ef miltað hefur verið fjarlægt t.d. eftir slys, er mikilvægt að bólusett (Pneumovax) við lungnahnettlubakteríunni. Bólusetningin dregur úr líkunum á að viðkomandi fái lungnabólgu af þessari tegund. Sprautan er virk í u.þ.b. 5 ár.
- Rosknu fólki (eldri en 65 ára) er ráðlagt að fá sér bólusetningu ef það hefur einhvern undirliggjandi sjúkdóm t.d sykursýki, hjarta- eða lungnasjúkdóma.
- Ef kvef varir óvenju lengi og vart verður við einhverja af ofantaalinna einkenna skal leita læknis.
- Brýnt er að sjúklingar greini frá ferðalögum (utanlandsferðum) í tengslum við veikindi því smit erlendis frá kallar stundum á annars konar meðferð.
Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?
- Greiningin byggist á sjúkrasögu, sjúkdómseinkennum og skoðun. Læknirinn hlustar lungun með hlustunarpípu og leitar eftir óeðlilegum öndunarhljóðum.
- Til frekari greiningar er tekinlungnamynd.
- Gott er að fá hrákasýni til smásjárskoðunar og ræktunar. Það gefur nákvæmari sjúkdómsgreiningu og auðveldar val á sýklalyfi.
Sjá einnig: Lungu eftir 60 sígarettur – Sjáðu þetta! – Myndband
Batahorfur
- Sjúkdómsferillinn er háður því hvernig ónæmiskerfið bregst við og er því einstaklingsbundið.
- Endurteknar og langvarandi lungnabólgur hjá rosknu fólki, geta verið merki um undirliggjandi sjúkdóm t.d. lungnakrabbamein.
- Þegar lungnabólgan er upprætt finnur viðkomandi oft fyrir þreytu og skertu úthaldi í allt að 2-3 vikur.
Hver er meðferðin?
Flestar lungnahnettlur eru næmar fyrir sýklalyfinu penisillíni.
Fleiri heilsutengdar greinar eru á
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.