Skorpulifur þróast þegar mikill fjöldi lifrarfruma deyr og í staðinn myndast örvefur og hnútar. Lifrarvefurinn verður því óeðlilegur á ákveðnum svæðum og getur ekki starfað eðlilega. Þetta leiðir til háþrýstings (hækkaður blóðþrýstingur) í lifrinni og skerðingar á starfshæfni hennar. Erlendis er skorpulifur ein algengasta dánarorsök einstaklinga á aldrinum 25-65 ára en hér á landi er skorpulifur ekki eins algengur sjúkdómur.
Hverjar eru orsakir skorpulifrar?
- Alkóhólismi.
- Lifrarbólga B og C.
- Óþekktar orsakir.
- Eiturefni, t.d. klóróform.
- Lyf, t.d. Methotrexate.
- Alvarlegir sjúkdómar: Efnaskiptasjúkdómar (Hemochromatosis(járngeymdargalli) og Wilson´s sjúkdómur). Hindrun á blóðflæði frá lifur til hjartans (krónísk hægri hjartabilun). Einnig ýmsir sjálfsónæmissjúkdómar og sarklíki (Sarcoidosis).
Sjá einnig: 12 staðreyndir um alkóhólisma sem allir ættu að vita
Hver eru einkennin?
Við upphaf sjúkdómsins eru mjög óljós einkenni:
- Þreyta og slappleiki.
- Minnkuð matarlyst, ógleði og þyngdartap.
Þegar sjúkdómurinn er lengra genginn:
- gula (húðin og hvíta augnanna verða gul).
- dökk gult eða brúnt þvag.
- litlar húðæðarnar verða sjáanlegar og líkjast köngulóarvef.
- hárlos.
- brjóst myndast á karlmönnum.
- miltað stækkar.
- vökvasöfnun í kvið og bjúgur á fótum.
- niðurgangur: Hægðirnar geta verið dökkar/blóðugar.
- uppköst. Þau geta verið blóðug vegna æðahnúta í vélinda.
- meðvitundarskerðing sem getur þróast yfir í meðvitundarleysi (kóma).
Hvenær er hætta á ferð?
- Það er einstaklingsbundið hversu mikla áfengisneyslu þarf til að skorpulifur myndist.
- Þeir sem vinna með eiturefni ættu að forðast þau eftir bestu getu og nota hlífðarbúnað. Flest efnin hafa slæm áhrif á lifrina.
- Við sýkingu af lifrabólgu.
- Við vannæringu.
Hvað er hægt að gera til að forðast lifrabólgu?
- Neyta áfengis í hófi.
- Fara í áfengismeðferð ef áfengisneysla er vandamál.
- Koma í veg fyrir lifrarbólgusmit (blóðblöndun). Þeir sem hafa lifrarbólgu nú þegar þarf að vera í reglulegu eftirliti hjá t.d. meltingarsérfræðingi.
- Varastu eiturefni á vinnustað.
Sjá einnig: 26 ástæður fyrir virkan alkóhólista að verða edrú
Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?
Starfsemi lifrarinnar er skoðuð með blóð- og þvagsýnum. Einnig er gerð ómskoðun á lifrinni. Stundum er tekið vefjasýni úr henni til nákvæmari greiningar.
Ráðleggingar
Ef alkóhólismi er orsök skorpulifurs, hætta skal samstundis að drekka. Hægt er að leita áfengismeðferðar hjá SÁÁ.
Starfsgeta
Takið þátt í athöfnum daglegs lífs. Ef mikill bjúgur er á fótum skal hafa þá í hálegu í hvíld.
Fæði
- Forðast áfengi.
- Borða próteinríkan og fjölbreyttan mat.
- Forðast salt.
- Á seinni stigum sjúkdómsins skal minnka próteinneysluna í áföngum.
- Það er nauðsynlegt að taka vítamín og steinefni.
Hverjir eru fylgikvillarnir?
- Getuleysi.
- Lífshættulegar blæðingar, sérstaklega frá vélinda og maga.
- Lifrarkrabbamein.
- Sýking (blóðeitrun).
Framtíðarhorfur
Það má koma í veg frekari tap á lifrarvef með því að fjarlægja sjúkdómsvaldinn en sá skaði sem þegar hefur komið fram verður ekki læknaður. Með breyttu líferni og meðferð má halda sjúkdómnum í horfinu. Ef ekkert er gert mun lifrin að lokum gefast upp og það leiðir til dauða.
Sjá einnig: Hann telur niður frá 21 – Hann er sonur alkóhólista – Myndband
Hver er meðferðin?
- Erfitt er að meðhöndla skorpulifur og beinist hún aðallega að þeim fylgikvillum sem hún hefur í för með sér.
- Við vökvasöfnun í kvið eða á fótum er gefið kalíumsparandi þvagræsilyf.
- Einnig er hægt að nota önnur þvagræsilyf.
- Betablokkarar, með langtímavirkni við blæðandi æðahnútum. Lyfið minnkar blóðþrýstinginn í æðahnútunum og kemur þannig í veg fyrir að þeir springi og valdi blæðingu.
- Hægt er að meðhöndla lífshættulegar blæðingar frá æðahnútum í vélinda inn á sjúkrahúsi með magaspeglun. Ef speglunin leiðir í ljós að um æðahnúta er að ræða, er hægt að meðhöndla þá með því að blása upp blöðru inni í vélindanu.
- Hægðalyf með sérstakt sykurinnihald er gefið þegar grunur leikur á að sjúklingur sé að fá lifrarkóma eða vegnalifrarkóma, til að draga úr myndun ammóníum í blóðrásinni.