Hvað ætli Kim Kardashian hafi fengið frá Kanye á Valentínusardaginn? Spurning hvort að það hafi verð fallegt kort eða kampavín og jarðaber? Nei ekki aldeilis, heldur sendi hann henni aðeins 1000 stykki af rauðum rósum. Kim setti á twitter síðuna sína, myndir af sér liggjandi í fallegum sófa ásamt hluta af þeim rósum sem hann sendi henni.
Rapparinn bað um hönd hennar í október 2013 á afmælisdegi hennar og bíður heimurinn eftir brúðkaupi þeirra sem verður í borg elskenda, París. En þangað til reyna þau að eyða sem mestum tíma saman ásamt dóttur sinni North 8 mánaða. Sást til Kim ásamt North á leið í flug frá Los Angeles til New York þar sem Kanye er staddur .