Þetta gæti verið auglýsing fyrir svo margt, sokkabuxur, hjálpartæki ástarlífsins eða undirföt.
En þetta er hönnun Paul Stiven sem er ítalskur hönnuður og framleiðandi Luxury Chewing Gum sem er lúxus tyggigúmmí.
Hugmyndin um þetta tyggjó snýst ekki um neitt sérstakt bragð heldur óvenjulegar pakkningar sem eru mjög frumlegar eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.