Leikkonan Courtney Cox sem varð fyrst fræg fyrir leik sinn í gamanþáttunum Friends mætti á rauða dregilinn á miðvikudaginn í Los Angeles gjörbreytt.
Sjá einnig: Courtney Cox: Fimmtug og í fantaformi
Hin 51 árs gamla Courtney hefur viðurkennt það að hún hafi í gegnum árin látið sprauta bótoxi í andlitið á sér en svo virðist sem leikkonan hafi látið gera eitthvað meira við andlitið á sér í þetta skipti.
Kinnarnar hennar voru þrýstnari og augun á henni virtust minni en vanalega. Courtney sagði í viðtali tímariti Closer að hún myndi aldrei leggjast undir hnífinn. Hún sagði einnig að maðurinn hennar, Johnny væri lítið fyrir Hollywood útlitið svo hún fyndi ekki fyrir neinni pressu að líta 20 árum yngri fyrir hann.
Sjá einnig: Hefur ekki brosað í 40 ár
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.