Ofurfyrirsætan Giselle Bündchen gekkst undir lýtaaðgerð í París, í Frakklandi, á brjóstum og augum nú á dögunum en gerði þó misheppnaða tilraun til þess að fara huldu höfði á leið sinni í aðgerðina. Fyrirsætunni fannst hún vera komin með sigin brjóst og húðin farin að gefa sig of mikið í kringum augum en hún er víst alveg jafn mennsk og við hin og eldist, ótrúlegt en satt. Hún var þó ekki ein á ferð heldur gekkst systir hennar einnig undir lýtaaðgerð á sama tíma.
Sjá einnig: Heima hjá ofurfyrirsætunni Giselle Bündchen í Los Angeles – Myndir
Giselle og systir hennar mættu íklæddar búrku á leið sinni á lýtalækningastofuna en ljósmyndarar slúðurblaðanna voru fljótir að sjá í gegnum gervi systranna. Ljósmyndarar slúðurblaðanna báru strax kennsl á einkabílstjóra Giselle en hann hefur starfað fyrir fyrirsætuna í 5 ár.
Fyrrum fyrirsæta undirfatarisans Victoria´s Secret steig einnig feilspor með því að klæðast opnum söndulum við búrkuna en að múslimskum sið er múslimskum konum bannað að klæðast opnum skóm.
Sjá einnig: Heimur lýtalækninganna – Heimildarmynd
Frakkar eru afar óánægðir með fyrirsætuna þar sem það hefur verið bannað frá því árið 2010 að klæðast búrku á opinberum stöðum í Frakklandi. Einnig eru múslimar ósáttir að Giselle noti búrku í þessum tilgangi og segja það vera misnotkun á klæðnaðinum.
Sjá einnig: Ber hún ábyrgð á útlitsdýrkun nútímans? – Bréf frá lesanda
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.