George Clooney hefur lengi verið einn af eftirsóttari piparsveinum Hollywood. Spurðu konu sem komin er yfir fertugt hvaða Hollywoodstjörnu hún er skotin í og í 90% tilvika er það Clooney. Í hinum 10% Matthew McConaughey,
George hefur fimlega vikið sér undan því að giftast, hann á ekki börn og er oft jafnfljótur í og úr samböndum eins og við hin úr brókinni.
En af hverju piparsveinalífið? Er það af því að hann er myndarlegur og sjarmerandi maður og getur það? Eða er einhver önnur ástæða.
Aðspurður í viðtali við W magazine hver af hans fyrri kærustum hefði verið hans sanna ást svarar Clooney að hann hafi ekki hitt þá einu sönnu ennþá. Þannig að Clooney gefur okkur konum undir fótinn með að hann muni ganga í hjónaband EF hann finnur þá einu sönnu.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.