Sveppasýking í hársverði/hári er vegna sýkingar af völdum húðsveppa. Húðsveppir skiptast í 3 flokka eftir því hvort þeir sýkja jörðina (geofile), dýr (zoofile) eða fólk (antropofile). Húðsveppasýking orsakast yfirleitt af hyrnismyglissveppi (microsporum canis) eða hringskyrfissveppi (trichophyton).
Latneska heitið yfir sveppasýkingu í hársverði er tinea capitis eða dermatophytosis capitis.
Sjá einnig: Sveppasýkingar, magaverkir, höfuðverkir, brjóstsviði, bjúgur og fleira úr sögunni?
Hver er orsökin?
Sveppasýking í hársverði sést næsta eingöngu meðal barna. Hugsanlega kemur meiri fituframleiðsla í hársverði fullorðinna í veg fyrir að húðsveppur nái að dafna.
Í flestum tilvikum berst sýkingin frá dýrum (hundum, köttum, kálfum, hömstrum og naggrísum). Flest spendýr bera húðsveppi án þess að það valdi þeim óþægindum en dýrin geta smitað aðra.
- Börn með sveppasýkingu í hársverði/hári geta smitað önnur börn.
Hver eru einkennin?
Til eru nokkur afbrigði sveppasýkingar í hársverði/hári m.a.:
- Í hársverðinum er eitt eða fleiri afmörkuð svæði þar sem húðin getur flagnað og hugsanlega er einnig bólga til staðar. Þá getur komið fram blettaskalli með einkennandi brotnum hárum.
- Bólgin, upphleypt svæði sem jafnvel getur vessað úr; ör geta myndast í kjölfarið.
- Í einstaka tilvikum fylgir hiti.
Sjá einnig: Bakteríur sem valda leggangasýkingum
Hverjir eru í áhættuhóp?
- Börnum sem eru mikið innan um dýr er hætt við að fá sveppasýkingu í hársvörð/hár. Algengara er þó að sýkingin fari í húðina og myndi hringlaga, hreistrandi bletti.
Ráðleggingar
Erfitt er að forðast húðsveppi þar sem þeir eru alls staðar í kringum okkur. En varist að börnin ykkar leiki sér við dýr með hárlausa, hringlaga bletti.
Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?
- Aðrir húðsjúkdómar hafa svipuð einkenni en allt aðra meðhöndlun. Því er mikilvægt að læknirinn greini ekki sjúkdóminn einungis út frá sjúkdómseinkennum heldur geri frekari rannsóknir.
- Tekið er sýni til ræktunar og skoðunar. Sumir sveppir ljóma þegar lýst er á þá með útfjölubláu ljósi (wood-light).
- Sjúklingnum verður jafnvel vísað til sérfræðings.
Batahorfur
Það er mikilvægt að hefja meðferð sem fyrst til að koma í veg fyrir að sýkingin breiðist út um líkamann og til þess að draga úr smithættu.
Ef bakteríur sýkja bólgin, upphleypt svæði í hársverði er aukin hætta á að blettaskallinn gangi ekki til baka.
Hver er meðferðin?
Bæði kemur til greina að gefa áburð og töflur. Í alvarlegum tilvikum kemur til greina að nota barkstera.