Við hér á hun.is höfum verið að fylgjast með umbyltingu fjögurra herbergja á Foshótel Lind sem útskrifaðir hönnuðir úr Listaháskóla Íslands hafa undanfarnar vikur unnið hörðum höndum að. Þema keppninnar var ÍSLAND og fengu keppendur frjálsar hendur um kaup á efnum og húsgögnum. Gjörningur þessi var hluti af Hönnunarmars sem er nýafstaðinn, þar sem fjögur tveggja manna lið börðust um fyrsta sætið. Herbergin eru tilbúin og mun dómnefndin koma saman um helgina og skera úr um hvaða lið var hlutskarpast. Til mikils er að vinna fyrir keppendur þar sem fjöldi fyrirtækja gefur feita vinninga
Dómnefndina skipa þeir Björn Skaptason Arkitekt, Davíð T Ólafsson Framkvæmdarstjóri Íslandshótela og Greipur Gíslasson verkefnastjóri Hönnunarmars.
Áhugasamir geta fylgst með úrslitunum á síðu hótelsins HÉR.
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.