Kylie Jenner leiðist lítið að vekja á sér athygli og stundum er eins og hún kjósi einfaldlega að vera umdeild. Bæði hegðun og klæðaburður raunveruleikastjörnunnar hefur tekið miklum breytingum síðan hún varð 18 ára í síðasta mánuði. Segja má að Jenner verði djarfari með hverjum deginum sem líður og gerir hún í því að hneyksla fylgjendur sína á Snapchat.
Sjá einnig: Kylie Jenner í ögrandi myndþætti í Galore
Kylie er stödd á tískuvikunni Í New York þessa dagana og mætti hún ásamt Tyga, sínum heittelskaða, á sýningu Alexander Wang um helgina. Parið hefur sennilega lítið fylgst með sýningunni af því þau virtust mjög upptekin af hvort öðru – eins og fylgjendur Kylie á Snapchat fengu smjörþef af en þar birti hún myndband þar sem Tyga er að narta í hennar heimsfrægu varir.
Og svo myndbandið sem er að gera allt vitlaust:
https://www.youtube.com/watch?v=_YQ17c_pXgo&ps=docs