Ég rakst á mynd sem þýtur um internetið þessa dagana eins og eldur um sinu en hún getur gefið hugmynd af því hvernig brjóstakrabbamein getur litið út. Alltaf er talað um hvað mikilvægt er að þreifa brjóstin til að vera vakandi fyrir breytingum og hnúðamyndunum en nú er einnig búið að gera þessa mynd svo við getum verið ennþá meira vakandi fyrir þessum óþverra. Ansi margar æxlis-myndanir geta verið viðráðanlegar ef þær nást á frumstigi og er því gríðarlega mikilvægt að vera sinn eiginn læknir stundum og hlusta á líkama sinn því enginn þekkir hann eins og við sjálf.
Hér má sjá þessa margumtöluðu mynd og legg ég til að þið skoðið hana vel:
Inga er fædd og uppalin í Reykjavík fyrir utan 2 ár sem hún bjó fyrir vestan í Bolungarvík. Þessi gifta, þriggja barna móðir er menntuð snyrtifræðingur og hefur unnið við það síðan 2006. Snyrtifræðin á stóran hluta af hug hennar og fagnaði hún þessu tækifæri að fá að skrifa greinar og jafnvel fá að aðstoða lesendur við vanda/spurningar sem þeir mögulega hafa.