Húðin er okkar stærsta líffæri og er því mikilvægt fyrir okkar að huga vel að henni svo hún haldist heilbrigð út lífið.
Ef óhreinindi, krem og farði eru ekki hreinsuð vel af andlitinu á kvöldin getur það bæði valdið stíflum, bólum og öðrum húðvandamálum, en einnig komið í veg fyrir að krem og serum sem borin eru á fyrir nóttina nái fullri virkni. Á morgnana er af sömu ástæðu gott að hreinsa húðina eftir nóttina.
Djúphreinsa húðina tvisvar í viku
Til að ná að hreinsa allar dauðar húðfrumur og uppsafnaðari olíu úr húðholunum er gott að djúphreinsa eða skrúbbahúðina létt tvisvar í viku.
Við gerum það með að nota kornaskrúbba, ávaxtasýrur eða djúphreinsa með ensímum. Húðin verður jafnari, meira ljómandi og dregur betur í sig aðrar vörur.
Gott er að velja djúphreinsi sem viðkomandi finnst best að nota. Því engin vara virkar inn í skáp ónotuð.
Kornaskrúbburinn frá Sanzi er án allra aukaefna og ilmefna og er því einstakalega mildur og góður. Einnig eru ensím mjög mild og góð leið til að djúphreinsa eins og þessi frá Skin Regimen.
Verndum húðina
Sólarvörn, sólarvörn, sólarvörn.
Mikilvægasta sem við gerum gegn ótímabærri öldrun er að nota sólarvörn. Hún kemur í veg fyrir skemmdir af völdum UV geisla. UV geislar sólarinnar brjóta niður kollagen húðarinnar og gera hana slappa, eykur litabreytingar og getur valdið húðkrabbameini. Því er mikilvægt að vernda vel húðina.
Veldu þægilega sólarvörn sem smýgur vel inn og er þægileg að nota undir farða. Einnig er hægt að velja andlitskrem með sólarvörn eins og þessa frá Marc Inbane sem er með SPF 30, léttum lit og æðislegum ljóma.
Endurnýjum húðina
Þróunin í snyrtivörum á síðustu árum er búin að vera gríðarleg og mikið hægt að gera í dag til að bæta húðina.
Vinsæl leið til að endurnýja og betrumbæta húðina er að nota retinol. Það er A vítamín sem eykur húðendurnýjun og hjálpar til við kollagen framleiðslu húðarinnar.
Einnig hafa tæknilegar snyrtivörur verið að ryðja sér til rúms með sinni einstöku virkni og þar á toppnum trónir Augustinus Bader. The Rich Cream var einmitt valið besta krem allra tíma árið 2022.
Ef þið hafið einhverjar spurningar um húðumhirðu ekki hika við að kíkja til okkar í Eliru Smáralind og fá rágjöf fagaðila.