Þessi skemmtilega uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Tinna hefur gaman af því að fara frumlegar leiðir í matargerð og nýta það sem náttúran hefur upp á að bjóða. Í þessa uppskrift notar hún ætihvönn sem sprettur meðal annars við árbakka og læki.
Sjá einnig: Ofnbakaðar kjötbollur
Hvannarkjötbollur í rjóma-BBQ
800 g nautahakk
2 egg
5-6 grófar bruður
1 laukur
3/4 dl mjólk
1 tsk nautakraftur
svartur pipar
1 1/2 tsk sjávarsalt
1/2 tsk cumin
1/2 tsk laukduft
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk Season All
handfylli söxuð ætihvannarlauf
Setjið nautahakk í skál ásamt eggjum og myljið bruðurnar yfir. Fínsaxið lauk og bætið við nautahakkið ásamt mjólk, nautakrafti, svörtum pipar, sjávarsalti, cumin, laukdufti, hvítlauksdufti, Season All og söxuðum hvannarlaufum.
Blandið öllum hráefnum vandlega saman með höndunum. Athugið þó að ef nautahakkið er hnoðað of lengi verður það seigt.
Útbúið hæfilega stórar kjötbollur með höndunum og raðið þeim í stórt eldfast mót. Eldið bollurnar í ofni við 180° í 20 mínútur og útbúið rjóma-BBQ sósu á meðan.
Rjóma-BBQ sósa
2 dl matreiðslurjómi
1 dl Honey Mustard BBQ sósa
1/2 dl tómatpassata
1 msk Maizena mjöl
Hitið rjóma, BBQ sósu og tómatpassata í potti og látið krauma við vægan hita í nokkrar mínútur. Þykkið sósuna með Maizena mjöli.
Þegar kjötbollurnar hafa eldast í 20 mínútur, hellið þá rjóma-BBQ sósunni yfir þær og eldið áfram í 5 mínútur.
Berið fram með hrísgrjónum og góðu hvítlauksbrauði.
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.