Zhongdong þorp í Kína er eina þorpið, sem vitað er um, þar sem 100 manns búa allan ársins hring í helli. Hellirinn er staðsettur 1800 metra yfir sjávarmáli og það liggur enginn vegur að honum. Þú þarft að ganga í um klukkustund til að komast að hellinum.
Eldri borgarar í Zhongdong hafa verið að pressa á stjórnvöld að leggja veg til þeirra en í dag ná þau bara sjónvarpi og fá dagblöð annað slagið. Þorpið er mjög einangrað frá umheiminum eins og gefur að skilja.
Skóli var í hellinum þangað til kínversk yfirvöld létu loka honum og sögðu:„Kína er ekki samfélag hellisbúa.“ Nú þurfa börnin að labba í um 2 klukkustundir til að sækja skóla á hverjum virkum morgni.
Í hverri viku fara íbúar, fótgangandi og kaupa allar nauðsynlegar birgðir á markaðnum í 15 km fjarlægð.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.