Sophia Loren var eitt aðalkyntákn síns tíma og lék í fjölmörgum myndum frá árinu 1950. Hún hóf leikferil sinn uppúr 14 ára aldri þegar hún tók þátt í fegurðarsamkeppni og var hvött til þess að fara í leiklist. Þessi ítalska ofurstjarna er í dag 79 ára gömul og mun eiga áttræðisafmæli á þessu ári.
Árið 1964 fór tímaritið Life heim til Sophia og tók viðtal við hana og eiginmann hennar, Carlos Ponti, og sýndi myndir af þeim á heimili þeirra hjóna. Þetta eru margar fallegar myndir og sumar hverjar mjög persónulegar líka.
Carlos Ponti lést árið 2007 en þau hjónin kynntust þegar Sophia var aðeins 15 ára gömul en gengu í hjónaband 7 árum síðar. Það hjónaband var seinna dæmt ógilt því Carlos var giftur annarri konu fyrir og þau létu svo gefa sig saman aftur 1966 og voru saman alla tíð.
Hér er svo til gamans ein mynd af Sophia eins og hún leit út árið 2013. Alltaf glæsileg!!
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.