Instagram er sívaxandi samskiptamiðill sem flestir eru farnir að þekkja og nota hér á landi. Á Instagram setur fólk inn myndir af hinu og þessu og sjálfu sér auðvitað líka. Margar stjörnur nota Instagram mikið og því höfum ákveðið að byrja með lið hjá okkur sem mun bera það einfalda heiti „Instagram dagsins“ og munum við birta skemmtilegar og áhugaverðar myndir sem við rekumst á, á Instagram.
Hún.is er auðvitað á Instagram og þú getur „followað“ eða fylgst með okkur með því að smella á þennan hnapp
Instagram dagsins er í boði Reykjavík Fashion Festival sem er haldin núna í fimmta skiptið.
Það hefur verð gríðarlegur undirbúningur í gangi bæði hjá hönnuðum og eins sýningarfólki á ströngum æfingum fyrir morgundaginn. Ekki láta þennan viðburð framhjá þér fara og kíktu í Hörpuna á morgunn.