Íslenskir lögreglumenn og konur eru ekki bara falleg ásýndar, heldur skemmta þau sér konunglega í vinnunni við Candy Floss át, björgun loðinna kettlinga og fá iðulega hláturköst í miðborginni og það frammi fyrir linsu ljósmyndarans.
Þetta er niðurstaða notanda á Bored Panda, sem birti nýverið umfjöllun um Instagram reikning lögreglunnar í Reykjavík þar sem greinarhöfundur segir að „meðan flestar lögreglusveitir veraldar starfi í streitufullu umhverfi og eigi hverfult samstarf við samborgara sína, sem þeir hafi þó svarið að vernda gegn áföllum og almennum glæpum, virðist sem íslenskir kollegar þeirra umfaðmi friðsæld þessa nær glæpalausa samfélags” og vitnar undirritaður því til stuðnings í þá staðreynd að „aðeins einu sinni hafi lögreglan lent í skotbardaga við almennan borgara sem hafi verið árið 2013 og leiddi til dauða þess síðarnefnda” og á þar væntanlega við að í nágrannaríkjunum séu slíkar uppákomur nær daglegt brauð.
Þó dagleg störf lögreglunnar í Reykjavík séu þó enginn dans á rósum, má eitt með sanni segja – Instagram reikningur íslensku lögreglunnar er litaður skemmtilegum skotum úr annars friðsælum hversdeginum í höfuðborginni.
Geri aðrir betur; hér má sjá myndaþáttinn sem ber fyrir augu lesenda á afþreyingarvefnum Bored Panda og sýnir með hvaða augum hinn almenni borgari víðsvegar um heimsbyggðina lítur lögregluna í Reykjavík:
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.