Jahérna hvað þetta er girnilegt. Þessi uppskrift kemur úr smiðju CafeSigrún. Hún er með svo margar æðislegar uppskriftir inni á síðunni sinni.
Ískonfekt
Gerir um 25-30 mola
Innihald
- 125 g cashewhnetur, lagðar í bleyti
- 60 g döðlur, saxaðar gróft
- 60 ml appelsínusafi (eða mangosafi)
- 1 banani, vel þroskaður
- 2 msk agavesíróp
- 2 msk kókosolía
- 100 g dökkt, lífrænt framleitt súkkulaði með hrásykri
Aðferð
- Leggið cashewhnetur í bleyti í nokkrar klukkustundir (eða yfir nótt).
- Saxið döðlurnar og leggið þær í bleyti í appelsínusafanum.
- Hellið vatninu af cashewhnetunum og setjið þær í matvinnsluvél. Blandið á fullum krafti í a.m.k. 1 mínútu.
- Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og blandið áfram í 30 sekúndur. Bætið kókosolíunni og agavesírópinu út í og haldið áfram að mala í nokkrar sekúndur.
- Skafið hliðarnar aftur og blandið í 30 sekúndur.
- Hellið appelsínusafanum út í, ásamt döðlunum og blandið áfram í um 1 mínútu eða þangað til cashewblandan er orðin mjúk.
- Bætið banananum út í og blandið áfram í um 10 sekúndur eða þangað til blandan er silkimjúk.
- Hellið ísnum í konfektmót úr sílikoni ef þið eigið svoleiðis (svo að þið fáið litla bita). Frystið í um 3-4 tíma
- Ef þið eigið ekki sílíkonmót, færið ísinn þá yfir í ísvél í 30 mínútur. Setjið svo ísinn í plastbox og inn í frysti.
- Ef ekki er notuð ísvél eða sílikonmót má frysta ísinn í plastboxi og hræra í ísnum á um 30 mínútna fresti í um 3-4 tíma. Áður en ísinn harðnar alveg er best að skafa litlar kúlur með melónuskeið. Setjið kúlurnar í box og frystið helst yfir nótt eða þangað til kúlurnar eru grjótharðar.
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. (Setjið svolítið vatn í lítinn pott. Setjið skál ofan á pott þannig að skálin sitji á brúnunum. Setjið súkkulaðið ofan í skálina og bræðið yfir vægum hita). Gætið þess að ofhita ekki súkkulaðið og það má alls ekki fara dropi af vatni ofan í skálina.
- Takið súkkulaðið af hitanum og látið það kólna í 5 mínútur.
- Takið ískúlurnar/ískonfektið úr frystinum (eina í einu) og dýfið með skeið í súkkulaðið eða þekið hverja kúlu með súkkulaði (hellið með teskeið yfir).
- Látið storkna á bökunarpappír í nokkrar mínútur og setjið svo aftur inn í frysti.
- Áður en ískonfektið er borðað þarf að láta það þiðna í um 5-10 mínútur.
Gott að hafa í huga
- Það má dýfa kúlunum t.d. í kókosmjöl eða smátt saxaðar hnetur áður en súkkulaðið harðnar alveg.
- Nota má hvaða ís sem er inn í konfektið en mikilvægt er að hann sé gaddfrosinn áður en súkkulaðið fer utan um hann.
- Nota má carob eða hvítt súkkulaði í staðinn fyrir súkkulaði.
- Nota má hlynsíróp í stað agavesíróps.
- Nota má macadamia hnetur í staðinn fyrir cashewhnetur.
Endilega splæsið í like á Facebook síðu CafeSigrúnar
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.