Leikkonan Jessica Biel og söngvarinn Justin Timberlake eru sögð eiga von á sínu fyrsta barni.
Tvö ár eru síðan þau gengu í það heilaga en skilnaðar- og framhjáhalds orðrómar hafa loðið við þau síðastliðið ár. Síðustu vikur hafa hjónin þó sést mikið saman og eyddu þau til að mynda tveggja ára brúðkaupsdeginum sínum saman á Nýja Sjálandi.
Fyrr í þessum mánuði náðust myndir af leikkonunni spóka sig um á bikiní á strönd á Hawaii en þá upphófst sá orðrómur að Jessica væri þunguð þar sem kviður hennar hafði tekið á sig nýja mynd. Eftir það hefur Jessica ekki gert mikið til að draga úr sögusögnunum en þegar hjónin voru á Nýja Sjálandi klæddist hún ítrekað víðum bolum og nýjustu myndir sem náðust af henni á miðvikudaginn í Los Angeles sýna að kviður hennar hefur stækkað enn meira frá því í byrjun mánaðarins.
Á myndunum sem náðust af Jessicu á miðvikudaginn má sjá hvernig hún reynir eftir bestu getu að fela á sér kviðinn með risa stórum trefli en án árangurs þar sem skyrtan sem hún klæddist opnast fyrir neðan nafla.
Erlend slúðurtímarit telja því nú engan efa vera á því að Jessica Biel gangi með þeirra fyrsta barn.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.