Íslenskum hönnuðum var boðin þátttaka á listhandverksmarkaði í Kaupmannahöfn, sem haldinn verður 14-16 ágúst nk. á torginu við Frúarkirkjuna í Kaupmannahöfn. Þær heppnu eru Guðrún Stefánsdóttir, Helga Ósk Einarsdóttir, Helena Sólbrá Kristinsdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Steinunn Vala og Þuríður Smáradóttir. Auk íslendinganna munu 137 hönnuðir ásamt handverksfólki taka þátt í markaðinum sem er einn sá stærsti og mest sótti í Skandinavíu. En það eru samtökin Danske Kunsthåndværkere sem standa fyrir viðburðinum.
HÉR má kynna sér Frue Plads markaðinn betur ásamt öllum þátttakendum í ár.
Frétt birt á heimasíðu Handverks og hönnunar
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.