
Ég hef heyrt svolítið af því nýlega að margir séu að vanda sig við að tala íslenskt mál og vilji endilega læra orðatiltæki, orð og setningar sem eru á góðri íslensku. Kannski er það bara fólk í kringum mig, sem er komið á ákveðinn aldur, ég er ekki viss. Ég er enginn sérfræðingur eða prófessor en íslensk tunga hefur alltaf verið eitthvað sem ég hef haldið vel í og legg mig fram um að tala gott og skýrt íslenskt mál. Við erum svo fá í heiminum sem tölum þetta mál og þegar íslensk börn eru farin að tala betri ensku en íslensku þá er fokið í flest skjól.
Þess vegna hef ég ákveðið að byrja með nýjan, fastan lið hér á Hún.is sem heitir Íslenskukorn vikunnar. Þar mun ég deila orðum, orðatiltækjum, reglum og fleiru tengdu íslensku máli og ég mun gera mitt allra besta til að hafa þetta allt rétt og setja dæmi þar sem það á við. Ég mun lesa mér til um það sem ég er að skrifa áður en ég birti það hér og bið því um þið sýnið mér skilning. Ég geri mitt besta.
Íslenskukorn vikunnar er eitthvað sem ég vil benda á sem ég heyri mjög oft og það hjá fólki sem hefur starfað í mörg ár hjá fjölmiðlum. Það tengist því að „verða var/vör við eitthvað“.
Oftar en ekki er notað „var“ í öllum kynjum en það rétta er auðvitað að spyrja konu hvort hún hafi orðið „vör“ við eitthvað og ef talað væri við kvár að nota „vart“.
Dæmi: Hefurðu orðið vör við einhvern hávaða í hverfinu?
Sjá einnig:
- Maður handtekinn hér á landi vegna barnaníðsefnis
- Dóttir Gene Hackman greinir frá líklegri dánarorsök
- Billie Eilish opnar sig um kynhneigð sína
- Stjörnuspá fyrir mars 2025
- Svona féllu atkvæði símakosninganna í söngvakeppninni
- Menendez bræður tjá sig opinberlega í viðtali

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.