Kuldameðferð eða Cold Therapy er þegar frosnir hlutir eru notaðir til að gera líkama þínum gott. Eitt af því sem má gera er að nota ísmola á bólur.
Bólur koma þegar svitaholur þínar fyllast af óhreinindum og húðfitu. Húðin verður bólgin og verður að bólu. Margir nota allskyns efni til að losna við bólur en kuldameðferð getur einnig virkað mjög vel.
Sjá einnig: Bólukort – Hvað segja bólurnar þínar um líkama þinn?
Hvernig: Nuddaðu ísmolanum í hringlaga hreyfingum á bóluna og bólguna. Æðarnar þrengjast aðeins undir bólunni og bólgan minnkar mjög mikið og bólan verður mjög lítið áberandi.
Ef þú bætir nokkrum dropum af tea tree olíu í vatnið áður en þú frystir það. Tea tree olía eyðir bólum á náttúrulegan hátt og vinnur á þeim með ísmolanum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.