Ítalarnir eru þekktir fyrir að elska mömmu sína, flestir ítalskir karlmenn flytja helst ekki að heiman fyrr en þeir nálgast fertugsaldurinn! Í gær sýndi Dolce & Gabbana haustlínu sína í Mílanó og var línan á sama tíma fallegur óður til mæðra um allan heim.
Fötin voru falleg og rómantísk, rósir, fallegar setningar um mæður og teikningar eftir börn voru prentaðar á kjólana. Fyrirsæturnar gengu tískupallana brosandi (það gerist allt of sjaldan) ýmist leiðandi börn eða með ungabörn í fanginu sumar með þeirra eigin. Öll börnin voru auðvitað fallega klædd og stíliseruð. Ofurfyrirsætan Bianca Balti gekk líka í sýningunni en hún á von á barni fljótlega. Viva La Mamma!
Every man everywhere has a mother.
Tengdar greinar: