Jafnvægi vinnu og einkalífs er viðfangsefni okkar flestra. Að „jöggla“ vinnu, fjölskyldu, námi, félagslífi, heimilisstörfum, líkamsrækt, áhugamálum og öllu hinu er mikil jafnvægislist. Samkvæmt skýrslu OECD er Ísland í sjötta neðsta sæti yfir lönd sem hafa gott jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Jafnvægi vinnu og einkalífs er okkur öllum mikilvægt. Hvað þú átt að gera til að skapa það jafnvægi sem þú þarft? Hvað er í forgangi? Á hvaða mikilvægu sviðum í lífinu viltu ná meira jafnvægi? Hvernig býrðu til og hrindir í framkvæmd áætlun sem hjálpar þér að ná markmiðum þínum og ásættanlegu jafnvægi?
Komdu á ókeypis 90 mín. vinnustofu hjá Dale Carnegie og náðu jafnvægi vinnu og einkalífs
Vinnustofan gefur þér tækifæri til að meta:
– Hve mikið jafnvægi/ójafnvægi er í lífi þínu.
– Skilgreina þau svið sem eyða má minni eða meiri tíma í.
– Gera áætlun um hvernig koma má vinnu og einkalífi í betra jafnvægi.
Flest stefnum við á að ná jafnvægi í lífi okkar. Við viljum eyða hæfilegum tíma í hvert svið lífs okkar. Engu að síður finnst okkur oft sem líf okkar einkennist af ójafnvægi. Vera má að ójafnvægið orsakist af tímabundnum aðstæðum. Í öðrum tilfellum er þetta ójafnvægi viðvarandi ástand. Við ættum að skoða hvers vegna og greina hvert við beinum orkunni og hve miklum tíma við verjum í hvert svið lífs okkar.
Smelltu hér og skráðu þig.
Tengdar greinar:
Lenti í alvarlegu bílslysi og þurfti að endurhugsa framtíðina
„Við eigum öll okkar fortíð“
Náðu fram því besta í fari þínu hjá Dale Carnegie
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.