Ástarlífið hennar Jennifer Aniston hefur verið í brennidepli í mörg ár, en svo virðist sem hún sé afar hamingjusöm í dag með Justin Theroux, sem hún giftist á síðasta ári.
Sjá einnig: Jennifer Aniston er komin með nóg
Jennifer sat fyrir svörum á hátíðinni og spurði einn unglingur hana spurningar, sem varð til þess að hún fór að gráta. Hún var spurð hvort hún hafði einhvern tíma vaknað á morgnanna og ekki vitað hver hún væri. Jennifer sagði að það væru ekki nógu margir fingur eða tær í herberginu sem nægðu til að telja upp þau skipti sem hún hafði lent í því að vita ekki hver hún væri.
Hún sagði að það skipti ekki máli hver þú ert eða í hvaða stöðu þú ert til þess að líða eins og þú hafir gengið á vegg og ekki vitað hvort þú komist eitthvað áfram. Því næst byrjar hún að gráta og segir:
Æ, nei þetta er of mikið. Hjartað mitt þolir þetta ekki því sársaukinn er svo mikill. Er ég nógu góð eða mun ég lifa það af? Þú þarft bara að komast af á einhvern undraverðan hátt og hvetja sig áfram.
Sjá einnig: Brad Pitt hafði samband við Jennifer Aniston
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.