Á fimmtudagskvöldið síðasta frumflutti Jennifer Lopez lagið Feel the Light í sjónvarpsþættinum sívinsæla, American Idol. Lagið féll þó gjörsamlega í skuggann af kjól ungfrú Lopez en hann var hreint út sagt ótrúlegur. Og með sína eigin ljósasýningu, ef svo má að orði komast.
Sjá einnig: L´Oréal ,,fótósjoppar“ Jennifer Lopez
Það er bráðnauðsynlegt að horfa á myndbandið – svona til þess að sjá sjónarspilið eins og það leggur sig:
https://www.youtube.com/watch?v=N0v6ITyTWv4&t=86&ps=docs
Ryan Seacrest átti ekki til orð eftir að J.Lo lauk sér af. ,,Er eitthvað hægt að halda áfram með þáttinn eftir svona atriði? Allt búið, þú vinnur Jennifer.”
Sjá einnig: 3 ára stúlka grætir Jennifer Lopez
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.