Popp-píurnar og þokkadísirnar Jennifer Lopez og Iggy Azaela lyftu þakinu af tryllingi þegar þær fluttu lagið Booty á American Music Awards 2014 um helgina.
Söngkonurnar spila báðar talsvert á kynþokka sinn í tónlistarmyndböndum en gefa greinilega ekkert eftir á sviðinu. Jennifer Lopez ætlaði sér upphaflega að verða atvinnudansari og hefur löngum lagt rækt við að iðka blóðheitt salsa, en eins og nafnið gefur til kynna er hún með spænskar rætur í ætt sinni.
Rætur Iggy Azaela má hinsvegar finna hinumegin á hnettinum, eða Ástralíu, þar sem hún er uppalin. Iggy hefur slegið í gegn allrækilega með smellum eins og „Work“ sem hefst á orðunum„Walk a mile in these Louboutins. But they don’t wear these shits where I’m from.“ Louboutins eru háhælaðir dömuskór, eða svo kallaðir „pumps. og fjallar lagið um blóð, svita og tár frægðarinnar og ferilsins.“
Talsverður aldursmunur er á þeim Iggy og JayLo eða samtals 21 ár. Iggy Azaela er 24 ára og Jennifer Lopez 45 ára og verður að segjast að Jennifer heldur sér í ótrúlega góðu formi með því að hrista á sér afturendan reglulega!
Hér má sjá myndband af atriðinu, varúð lækkið í hljóðinu.
https://www.youtube.com/watch?v=wK_cPEL2Fpg&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs
Heimild: DailyMail.co.uk
Tengdar greinar:
Jennifer Lopez lenti í andlegu og líkamlegu ofbeldi
Jennifer Lopez fjárfestir í þakíbúð
Það er alltaf von og þessar stjörnur sanna það