Varla hefur hjónasængin kólnað milli þeirra J´Lo og Casper fyrr en dívan er komin í arm annars manns og í þetta skiptið er það algert leyndarmál, en J´Lo segir þau Maksim-Chmerkovskiy „BARA” vera vini, þó opinber atlot þeirra beri merki um annað.
Maksim, sem þekktur er úr þáttaröðinni Dancing With The Stars hefur þvertekið fyrir sögusagnirnar og segir „engum koma það við hvaða konur hann gerir sér dælt við” en þau Jennifer hafa í nokkrar vikur verið orðuð við hvort annað.
Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ birti þessa mynd af „vinunum” á næturklúbbi um helgina:
Jennifer (J´Lo) sleit nýverið sambandi við unga dansarann Casper, en orsök sambandsslitanna mun hafa verið hliðarspor Casper og raknaði upp úr kærleikanum í kjölfarið. Hin 44 ára gamla díva virðist þó ekki hafa verið lengi að taka upp þráðinn í einkalífinu og láta fjölmiðlar vestanhafs ekki undan þeim getgátum að hún sé tekin saman við hinn 34 ára gamla dansara, sem þykir ólíkt myndarlegri og nær dívunni í aldri.
Hverju sem líður er eitt á hreinu: Maðurinn er sjóðheitur!
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.