Munið þið eftir jógúrtkökunum með súkkulaðibitunum, þessum gömlu góðu?
Mig langaði ótrúlega mikið í svoleiðis um daginn svo ég fór heim til mömmu og fékk uppskriftina sem var notuð á okkar heimili. Deigið smakkaðist alveg eins og mig minnti og fór því ekki alveg allt í formin. Ég er búin að gera kökurnar tvisvar upp á síðkastið en í seinna skiptið prófaði ég að minnka sykurinn um helming og viti menn þær voru enn mjög sætar og góðar. Í upphaflegu uppskriftinni er 2 og ½ bolli af sykri en þegar ég gerði kökurnar þannig þá bókstaflega klístruðust þær við puttana á mér, sem var samt alveg mjög gott.
Jógúrtkökur
30-40 kökur
2 ½ bolli hveiti
2 ½ bolli sykur (eða 1 ¼ bolli)
½ tsk matarsódi
½ tsk salt
220g smjör
3 stór egg
1 tsk vanilludropar
1 dós kaffijógúrt
100g saxað súkkulaði
Hitið ofninn í 180°C.
Blandið þurrefnunum saman í skál og bætið svo smjöri, eggjum og vanilludropum út í. Þar næst er kaffijógúrtinu bætt út í og súkkulaðinu. Ekki þarf hrærivél því hægt er að hræra allt með sleif.
Setjið muffinsform á bökunarplötu og setjið deigið í með matskeiðum.
Bakið í um 12-15 mínútur eða þar til kökurnar eru orðnar gylltar og tannstöngull sem er stungið í þær kemur hreinn út.
Mamman er búsett í úthverfi höfuðborgarsvæðissins ásamt eiginmanni og tveimur hressum og heilbrigðum börnum. Mamman mun skrifa um ýmislegt sem við kemur börnum, s.s. uppeldi, hreyfingu, matarvenjur og fleira