Jóhann Jóhannsson, tónskáld og lagasmiður hlaut Golden Globe-verðlaunin í nótt fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The Theory of Everything, en aðrir tilnefndir í sama flokki voru Trent Reznor og Atticus Ross fyrir Gone Girl, Antonio Sanchez fyrir Birdman, Alexandre Desplat fyrir The Imitation Game og Hans Zimmer fyrir Interstellar.
Í myndinni er rakin saga eðlisfræðingins Stephen Hawking og fyrstu eiginkonu hans, Jane, barátta hans við eigin veikindi og merkar uppgötvanir hans.
Jóhann sagðist í viðtali við Morgunblaðið í desember sl. að það væri mikill heiður og gleði að vera tilnefndur og fá viðurkenningu á þessari vinnu og samstarfi sínu við leikstjóra myndarinnar, James Marsh.
Fyrir mig er vinnan alveg næg verðlaun, að fá að taka þátt í svona sterku verkefni og fá að vera með í svona kvikmynd. Allt annað er bónus.
CNN greindi frá því í nótt að Jóhann hefði með verðlaununum skákað samlanda sínum, Björk, sem hlaut tvær tilnefningar til Golden Globes verðlauna árið 2001.
Hér að neðan má sjá stiklu myndarinnar,- meðal annars Eddie Redmayne í hlutverki Stephen Hawking, en hann hlaut einnig Golden Globes fyrir frammistöðu sína í aðalhlutverki.
Tengdar greinar:
Þessi eru tilnefnd til Golden Globes verðlauna 2015
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.