Það hafa margir tekið eftir því að Johnny Depp lítur óvenju frísklega út nú í aðdraganda Óskarsverðlaunanna.
Hann hefur einbeitt sér seinustu ár að því að vera listamaður frekar en að vera það kyntákn sem hann var á sínum yngri árum og fór að höfða til annars hóps kvenna, já og ábyggilega karla líka.
Nú hefur hann hinsvegar fjárfest í sínum eigin 3000 punda (580 þúsund krónur) brúnkuklefa sem hann hefur á heimili sínu. Heimildarmaður The Sun sagði þetta: „Honum varð það ljóst að hann var orðinn virkilega fölur og veiklulegur og í staðinn fyrir að stunda sólböðin, sem er mjög óhollt fyrir húðina, þá keypti hann sér brúnkuklefa til að nota heima við. Hann fór einnig og lét hvítta tennur sínar.“