Annað atriði hefur komið upp í dómsmáli Johnny Depp og Amber Heard, en hún ákvað að minnast á atvik sem getur látið mann halda að Johnny sé alveg snaróður.
Sjá einnig: Ný gögn í máli Johnny Depp og Amber Heard
Í einu af brjálæðisköstum Johnny, skar hann af enda fingur síns, dýfði honum í málingu og skrifaði vel valin orð til Amber. Hann var blindfullur og hafði tekið alsælu, sem endaði með því að hann datt í afbrýðissemiskast og hélt því fram að Amber væri að halda við Billy Bob Thorton (61).
Amber segir að Johnny hafi ekki látið kíkja á fingurinn á sér í einn sólarhring, sem varð til þess að það þurfti að græða húð af hendi hans á fingurinn og varð það til þess að fresta þurfti tökum á kvikmyndinni Pirates of the Carribbean.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.