Það getur verið mikill hausverkur að finna jólagjafir fyrir fólk. Sumir eru með langan lista af því sem þau langar í en aðrir segjast eiga allt og maður veit ekkert hvað maður á að gefa þeim.
Listinn skiptist í nokkra flokka:
Fatnaður
Það er fátt betra en eiga góðar og vandaðar flíkur sem endast og endast.
Kósý föt - Alma
Hafðu það kósý um jólin eða gefðu kósý jólagjöf. Alma fatnaður er danskur og er einstaklega mjúkur og þægilegur. Hægt er blanda settum saman rauðar buxur, röndóttur bolur svo eru einnig til kjólar, svo er alltaf hægt að panta svart.
Kjóll - Glimmer fyrir dömuna
Nuno LS svartur glimmerkjóll. Það getur ekki orðið mikið fallegra um hátíðarnar. Það er aldrei of mikið til af fallegum kjólum.
Annað fatakyns:
- Sokkar
- Nærbuxur
- Ullartrefill
- Húfa
- Belti
- Íþróttaskór
- Vettlingar
- Bindi
- Slaufa
- Kjóll
- Aðhaldsfatnaður
Fegurð og heilsa
3 skrefa rútína
Dásamleg þriggja skrefa húðrútína frá LOVAICELAND. Mjúkur hreinsir, nærandi og rakagefandi serum og krem sem vinnur gegn öldrunamerkjum og eykur kollagenframleiðslu.
Gjafabréf hjá Útlitslækningu
Hvort sem þú vilt fara í smá dekur, fjarlægja húðflúr eða lyfta húðinni þá geturðu fengið allt hjá Útlitslækningu.
Gjafabréf í Útlitslækningu er frábær jólagjöf!
Annað fegurðar- og heilsutengt:
- Sturtusápa
- Sjampó og hárnæring
- Góður hárbursti
- Rafknúinn tannbursti
- Rakvél
- Gufutæki
- Baðbombur
- Íþróttataska
- Förðunarvörur
- Ilmvatn/líkamssprey
- Glös
- Nuddtæki
- Nuddbyssa
Heimilið
Ilmkerti
Tími ljóss og friðar er að byrja og hvað er þá meira viðeigandi en að gefa vandað og vellyktandi kerti? Það er mikið úrval af veglegum kertum inni á Heimilislegt.is
Chic Antique skurðarbretti
Í vefversluninni Heimilislegt.is er hægt að finna alveg einstaklega fallega muni fyrir heimilið. Þetta skurðarbretti er frábær gjöf til að gefa pari af hvaða kyni sem er.
Dúnmjúkt handklæði
Handklæði eins og þessi, úr 100% bómull, eru bara svolítið mikill lúxus. Frábær og vegleg gjöf frá Heimilislegt.is
Annað fyrir heimilið:
- Kertastjaki
- Bollar
- Glös
- Blómapottur
- Blómavasi
- Veggskraut (myndir, textar)
- Vínrekki
- Bókastoð
- Soda stream tæki
- Kaffivél
- Kökudiskar
- Kökuhnífar
Skartgripir
Armband - Kærleikur
Armbandið „Kærleikur“ frá VeraDesign er ekkert smá falleg gjöf fyrir einhvern sem þú elskar. Lengdin er stillanleg með fallegu hjarta við endann á
keðjunni, og hentar því flestum.
Armband - Infinity
Armbandið „Infinity“ frá VeraDesign er ekkert smá falleg gjöf fyrir einhvern sem þú elskar. Lengdin er stillanleg og hentar því flestum.
Father - Hálsmen
Father línuna hannaði Íris Björk yfirhönnuður og stofnandi VERU DESIGN í minningu föður síns.
Hægt að fá í gulli og silfri og nokkrir litir af steinum í boði.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.